Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 352  —  289. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)



1. gr.


    Í stað „922 kr.“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: 1.018 kr., og í stað „350.000 kr.“ í sömu málsgrein kemur: 387.000 kr.

2. gr.

    Í stað „1.230 kr.“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 1.358 kr.


3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Gjöldin eru tvenns konar og eru lögð á eigendur fiskiskipa. Annars vegar er um að ræða gjald sem lagt er á um hver áramót og miðast við stærð skips í brúttótonnum. Hins vegar er um að ræða gjald sem lagt er á við úthlutun aflaheimilda. Fram að framangreindri lagabreytingu hafði fjárhæðum verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til:
     1.      Að gjald á hvert brúttótonn fiskiskips verði hækkað úr 922 kr. í 1.018 kr. og að hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn hvers skips hækki úr 350.000 kr. í 387.000 kr. Árið 2000 námu tekjur Þróunarsjóðs af þessu gjaldi um 92 m.kr. Verði frumvarp þetta að lögum má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldinu hækki um 10 m.kr. og verði um 102 m.kr. árið 2002.
     2.      Að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.230 kr. í 1.358 kr. Árið 2000 námu tekjur Þróunarsjóðs af gjaldi á aflaheimildir um 538 m.kr. Verði frumvarp þetta að lögum ásamt því að úthlutun þorskígilda verði söm og á yfirstandandi fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar lækki um 19 m.kr. frá árinu 2000 og verði um 519 m.kr. árið 2002. Lækkunin stafar af fækkun úthlutaðra þorskígilda úr um 460.000 fiskveiðiárið 1999/2000 í um 382.400 þorskígildi fiskveiðiárið 2001/2002.
Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:



Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 92/1994,
um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að gjald sem lagt er á aflaheimildir við úthlutun þeirra og rennur til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins verði hækkað úr 1.230 kr. í 1.358 kr. en áætlað er að sú hækkun leiði til 519 m.kr. innheimtu ríkistekna sem ganga til sjóðsins og er það 64 m.kr. hækkun frá frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2002. Einnig hækkar hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn skipa úr 922 kr. í 1.018 kr. Reiknað er með að þessi breyting skili 112 m.kr. í innheimtu ríkistekna sem renni til sjóðsins og er það 12 m.kr. hækkun frá fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2002.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að ríkistekjur sem renni til Þróunarsjóðsins á árinu 2002 nemi 631 m.kr. sem er 71 m.kr. hækkun frá fjárlögum 2001 en 11 m.kr. hækkun frá innheimtu ársins 2000 sem nam 620 m.kr.